Öll óþarfa umferð er bönnuð, leikir og hverskonar hávaði.
Lausaganga hunda er bönnuð í Kirkjugarðinum. Heimilt er að fara með hunda um garðinn í ól. Þeir sem fara með hunda í garðinn eiga að hirða upp eftir þá skít og setja í sérstaka poka.
Börn mega ekki hafast þar við, nema í fylgd með fullorðnum, sem þá beri ábyrgð á hegðun þeirra.
Umferð vélknúinna ökutækja er óæskileg.
Ef nauðsyn er á akstri um garðinn skal hraði ökutækja aldrei fara yfir 20 km. á klst.
Vinsamlega gangið eins snyrtilega um og frekast er unnt og notið sorpílát.
Eigi má setja girðingar úr steini, málmi, timbri eða öðrum efnum um einstök leiði eða fjölskyldureiti.
Tré og runna má ekki gróðursetja, án leyfis kirkjugarðsstjórnar.