Jólaljósin eru ekki á vegum garðsins heldur er þetta fyrirtækið Jólaljósin ehf. sem sér um jólalýsinguna.
Hægt er að panta jólaljósin í gegnum síma eða í gegnum vefsíðu fyrirtækisins: jolaljosin.is
Jólaljósin ehf byrja oftast um 20. nóvember að selja jólaljósin á netinu og í síma.
Fyrirtækið sér um að tengja og hengja upp jólaljósin á krossa eða legsteina.
Allar upplýsingar og hvernig á að panta jólaljósin eru á vefsíðu fyrirtækisins og ef aðstandendur hafa ekki leiðisnúmer þá er tenging af jolaljosin.is yfir á gardur.is til að finna leiðisnúmerið.
Aðstandendur geta einnig hringt í Kirkjugarðinn til að fá upplýsingar um leiðisnúmerið í síma 555-1262.
Sorpflokkun og jólaskraut
Starfsfólk Kirkjugarðsins flokkar ruslið frá garðúrganginum og kemur í endurvinnslu.
Aðstandendur eru beðnir að hafa lífrænt jólaskraut á leiðum, það er mikil vinna að flokka ólífrænt skraut af greinum og endurvinna.
Vinsamlegast verið búin að fjarlægja jólaskraut af leiðum fyrir 1. mars ef aðstæður leyfa og að fólk hafi tækifæri til þess.
Rétt fyrir páska fer starfsfólk Kirkjugarðsins að hreinsa upp það jólaskraut og kertadósir sem eftir verður.